Vá Ráðgjöf styður fyrirtæki og stjórnendur í að efla samskipti, takast á við krefjandi starfsmannamál og byggja upp vinnustaði þar sem ábyrgð og árangur fara saman.
Ráðgjöfin byggir á faglegri reynslu úr stórum og fjölbreyttum vinnustöðum og miðar að því að styðja stjórnendur og teymi í að finna raunhæfar lausnir sem virka í daglegum rekstri.
Svona getum við hjálpað

Þróun stjórnenda og teyma
Þróun stjórnenda og teymis hjá VÁ Ráðgjöf snýst um að efla árangur stjórnenda og teymis með samtölum, greiningu og markvissri þróun. Ég nýti aðferðir markþjálfunar til að efla sjálfsvitund, stuðla að betri samskiptum og samstarfi, hjálpa fólki að nýta styrkleika sína í starfi og skapa rými fyrir lærdóm og þróun. Þjónustan tekur mið af þörfum og markmiðum einstakra stjórnenda og teymis, sem útskýrir hversu mikilvægt það er að byggja upp stöðugleika og árangur í störfum.

Samskipti og vinnustaðamenning
VÁ Ráðgjöf einblínir á að greina áskoranir í samskiptum, stjórnun og starfsánægju. Markmiðið er að efla regluleg og uppbyggileg samtöl milli stjórnenda og starfsfólks, með aðferðum Five Conversations eftir Dr. Tim Baker. Þjónustan stuðlar að menningu þar sem samtöl ýta undir þróun starfsfólks og eflingu árangurs fyrirtækis.

Vinnustofur og námskeið
VÁ Ráðgjöf bjóðum við upp á vinnustofur og námskeið sem styðja stjórnendur og teymi við að þróa samskipti, skýra ábyrgð og styrkja vinnustaðamenningu. Vinnustofurnar okkar eru gagnvirkar og miðast við raunveruleg vandamál, einblína á betri samtöl og hjálpa þegar samskipti verða flókin. Sérsniðnar lausnir sem hjálpa þínu teymi að ná betri árangri í daglegu starfi!
Áherslur og fagleg nálgun
Við trúum því að árangur í atvinnulífinu byggist á skýrri stefnu og mannlegum gildum. Okkar aðferðafræði miðar að því að skapa jafnvægi á milli skipulagsheilda og einstaklinga með yfirvegaðri og faglegri nálgun. Við leggjum áherslu á trausta ráðgjöf þar sem hlustun og vönduð greining eru undirstaðan í öllu okkar starfi, án óþarfa málalenginga.