Um VÁ Ráðgjöf
VÁ Ráðgjöf var stofnað árið 2026 af Vöku Ágústsdóttur, mannauðssérfræðingi með yfir 15 ára reynslu af fjölbreyttum hlutverkum innan mannauðs og stjórnunarráðgjafar. Vaka lauk Mastersgráðu í vinnusálfræði (M.Sc.) frá Háskóla Íslands, með sérhæfingu í því hvernig fólk nýtir sér bjargráð við svokallað vinnuráp.
Áður en hún stofnaði VÁ Ráðgjöf starfaði Vaka í rúman áratug hjá LS Retail, alþjóðlegu tæknifyrirtæki með starfsstöðvar víða um heim. Þar sinnti hún fjölbreyttum mannauðsverkefnum, meðal annars á sviði ráðninga, starfsþróunar, stjórnendaþjálfunar og stuðnings við stjórnendur og alþjóðleg teymi í ört vaxandi rekstri.
Í kjölfarið starfaði Vaka sem mannauðsstjóri IKEA á Íslandi, þar sem hún bar ábyrgð á mannauðsmálum stórs og fjölbreytts starfsmannahóps innan alþjóðlegrar keðju. Þar öðlaðist hún dýrmæta reynslu af stefnumótandi mannauðsstjórnun, vinnustaðamenningu, samskiptum og jafnvægi milli alþjóðlegra viðmiða og staðbundinna þarfa.
Áherslur VÁ Ráðgjafar
Ráðgjöfin byggir á raunverulegri reynslu úr krefjandi starfsumhverfum og djúpum skilningi á daglegum aðstæðum stjórnenda og starfsfólks. Lögð er áhersla á mannlega nálgun, skýr samskipti og hagnýtar lausnir sem nýtast í raun, ekki aðeins á blaði.
-
stjórnenda- og leiðtogaþjálfun
-
teymisvinnu og samskipti
-
erfið mannauðsmál og ágreining
-
mótun og þróun vinnustaðamenningar
VÁ Ráðgjöf getur aðstoðað við:
Ráðgjöfin er ávallt aðlöguð að hverju fyrirtæki eða stofnun fyrir sig, með það að markmiði að styðja við sjálfbæran árangur og sterkt samstarf.