top of page

Five Conversations 

Markviss samtöl sem styrkja traust, skýrleika og árangur

Five Conversations er samtalsrammi þróaður af Dr. Tim Baker, sérfræðingi á sviði forystu, stjórnunar og skipulagsþróunar. Aðferðin byggir á fimm markvissum samtölum sem styðja við betri samskipti, þróun og árangur á vinnustað. Hvert samtal hefur sitt þema og er byggt á spurningum sem hjálpa báðum að undirbúa sig og ræða það sem skiptir máli. Markmiðið er að gera samskipti markvissari, persónulegri og gagnlegri í daglegu starfi.

FCF.png

Fimm samtöl sem skipta máli

1. Samtal um líðan og starfsumhverfi

Farið er yfir hvernig starfið gengur, hvernig samskipti og samstarf upplifast og hvað hefur áhrif á starfsánægju og daglega upplifun.
 

2. Samtal um styrkleika og framlag

Rætt er um það sem starfsmaður gerir vel, hvernig styrkleikar nýtast í starfi og hvar viðkomandi getur lagt enn sterkara af mörkum.
 

3. Samtal um tækifæri og árangur

Horft er til verkefna, markmiða, frammistöðu og þeirra tækifæra sem geta stutt áframhaldandi árangur og vöxt.
 

4. Samtal um nám og þróun

Áhersla er á faglega þróun, stuðning, þjálfun og hvernig hægt er að efla hæfni og sjálfstraust í starfi.
 

5. Samtal um umbætur og nýjar leiðir

Rætt er um hugmyndir, þróun, skilvirkni og hvernig megi bæta samstarf, vinnulag og árangur í sameiningu.

Í annasömu starfsumhverfi verða samskipti oft stutt og verkefnamiðuð. Five Conversations hjálpar stjórnendum að skapa reglulegt rými fyrir samtöl sem efla traust, skýrleika og þróun.

Ávinningur af Five Conversations

Traust

Regluleg samtöl skapa betri tengsl, meiri hreinskilni og sterkari grunn fyrir samstarf.

Skýrleiki

Væntingar, hlutverk og stuðningur verða skýrari þegar samtöl eru markviss og endurtekin.

Þróun

Starfsfólk fær meira rými til að vaxa, nýta styrkleika sína og taka ábyrgð á eigin framförum.

Hvernig getur VÁ Ráðgjöf aðstoðað?

VÁ Ráðgjöf styður stjórnendur og vinnustaði við að innleiða Five Conversations á skýran, mannlegan og hagnýtan hátt. Áhersla er lögð á að aðferðin falli að menningu, þörfum og veruleika hvers vinnustaðar svo samtölin verði raunhæfur hluti af daglegu starfi.

 

Stuðningurinn felur í sér:

  • kynningu á Five Conversations fyrir stjórnendur og teymi

  • þjálfun í markvissum og uppbyggilegum samtölum

  • stuðning við innleiðingu

  • eftirfylgni

Hafðu samband og við finnum leiðina saman

bottom of page