Þróun stjórnenda og teyma
Sterk forysta og samstillt teymi eru lykillinn að góðum árangri. Með markvissum stuðningi geta stjórnendur styrkt leiðtogahæfni sína, bætt samskipti og skapað umhverfi þar sem starfsfólk nær að blómstra.
VÁ Ráðgjöf styður stjórnendur og teymi í að efla samskipti, auka traust og bæta samvinnu.
Helstu áherslur
Sniðið að ykkar þörfum
Styrking stjórnenda í hlutverki sínu
Stuðningur við stjórnendur í að takast á við dagleg verkefni stjórnunar, taka erfið samtöl og byggja upp traust í teymum sínum.
Þróun teyma
Vinnustofur og samtal sem hjálpa teymum að bæta samstarf, skýra hlutverk og vinna að sameiginlegum markmiðum.
Stuðningur við stjórnendur í krefjandi málum
Ráðgjöf í tengslum við áskoranir í samskiptum, frammistöðusamtöl og aðstæður sem krefjast faglegra og skýrra viðbragða.
Regluleg og uppbyggileg samskipti
Innleiðing aðferða sem styðja við regluleg samtöl milli stjórnenda og starfsfólks, til að efla traust, ábyrgð og frammistöðu.
Dæmi um verkefni
-
Þjálfun stjórnenda í samskiptum og leiðtogahæfni
-
Vinnustofur fyrir teymi um samstarf og traust
-
Innleiðing á samtalsramma eins og Five Conversations
-
Stuðningur og handleiðsla fyrir stjórnendur í frammistöðusamtölum
-
Ráðgjöf í krefjandi starfsmannamálum
Hugmyndir að samstarfi
-
Ráðgjöf og handleiðsla fyrir stjórnendur
-
Vinnustofur fyrir teymi
-
Þjálfun eða námskeið
-
Greining og tillaga að umbótum fyrir stjórnendur