top of page

Vinnustofur og námskeið

Vinnustofur og námskeið veita stjórnendum og teymum tækifæri til að staldra við, skoða eigin samskipti og þróa nýjar leiðir til samstarfs og forystu.

Áhersla er lögð á hagnýta nálgun þar sem þátttakendur vinna með raunverulegar aðstæður úr eigin starfi.

Dæmi um vinnustofur og námskeið

Hagnýt fræðsla fyrir stjórnendur, teymi og vinnustaði - sniðin að raunverulegum þörfum.

Starfsmannasamtöl

Aðferð byggð  á Five Conversations eftir Dr. Tim Baker  sem styður stjórnendur í að eiga regluleg og markviss samtöl við starfsfólk. Slík samskipti efla traust, skýrleika, helgun og vellíðan og styðja þannig bæði frammistöðu og þróun

Áhrif stjórnandans

Farið yfir þau áhrif sem stjórnandi hefur á líðan, þróun og árangur starfsfólks. Áhersla lögð á hvernig samskipti, viðhorf og skýr leiðsögn geta stutt við bæði vellíðan og faglega þróun í starfi.

Erfið starfsmannamál

Hagnýtt námskeið fyrir stjórnendur sem þurfa að takast á við viðkvæm eða krefjandi starfsmannamál af fagmennsku, festu og virðingu. Farið er yfir undirbúning, samskipti og mikilvægi skýrrar málsmeðferðar.

Nýr stjórnandi

Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í stjórnendahlutverki. Farið er yfir helstu undirstöður góðrar stjórnunar, með áherslu á samskipti, traust, skýrar væntingar og örugga byrjun í nýju hlutverki.

Framúrskarandi teymi

Vinnustofa um hvernig byggja má upp teymi sem einkennast af trausti, skýrum markmiðum, góðum samskiptum og sterkri samvinnu. Áhersla er lögð á hvað styrkir teymi og hvernig hægt er að skapa árangursríkt samstarf.

Endurgjöf sem skiptir máli

Hagnýtt námskeið fyrir stjórnendur og teymi um hvernig veita má skýra, uppbyggilega og virðingarríka endurgjöf. Áhersla er lögð á samtöl sem styðja við bæði þróun og árangur.

Uppbygging námskeiða og vinnustofa

Vinnustofur og námskeið eru sniðin að þörfum hvers vinnustaðar. Áhersla er lögð á hagnýta nálgun þar sem þátttakendur vinna með raunverulegar aðstæður úr eigin starfi.​

Efni námskeiða og vinnustofa er mótað í samráði við viðskiptavin og getur meðal annars byggst á:

  • áskorunum sem stjórnendur eða teymi standa frammi fyrir

  • raunverulegum dæmum úr starfi þátttakenda

  • umræðum og verkefnum sem tengjast daglegu samstarfi

  • aðferðum sem styðja við betri samskipti og skýrari forystu

Markmiðið er að þátttakendur fái skýra sýn, hagnýt verkfæri og hugmyndir sem nýtast í daglegu starfi

Hafðu samband og við finnum leiðina saman

bottom of page