top of page

Samskipti og vinnustaðamenning

Góð vinnustaðamenning byggist á trausti, skýrum samskiptum og ábyrgri forystu. Þegar samskipti eru opin og regluleg eykst samstarf, skuldbinding og vellíðan starfsfólks.

VÁ Ráðgjöf styður fyrirtæki í að efla samskipti á vinnustað og skapa menningu þar sem fólk treystir hvert öðru og vinnur saman að sameiginlegum markmiðum.

Helstu áherslur

Sniðið að ykkar þörfum

Group Therapy Session

Traust og sálfræðilegt öryggi

Stuðningur í að byggja upp vinnuumhverfi þar sem starfsfólk þorir að tjá skoðanir sínar, spyrja spurninga og læra af mistökum.

Menning sem styður við árangur

Rýni á vinnustaðamenningu og aðgerðir sem styðja við jákvæð samskipti og sameiginlega ábyrgð.

Bætt samskipti í teymum

Vinnustofur og ráðgjöf sem hjálpa teymum að bæta samvinnu, draga úr misskilningi og styrkja samstarf.

Stuðningur í krefjandi samskiptamálum

Ráðgjöf þegar upp koma áskoranir í samskiptum eða ágreiningur sem hefur áhrif á samstarf og líðan.

Dæmi um verkefni

  • Greining á samskiptamenningu

  • Vinnustofur um samskipti og traust

  • Stuðningur við stjórnendur í samskiptaáskorunum

  • Aðgerðir til að styrkja vinnustaðamenningu

  • Samtal og leiðsögn í tengslum við ágreining eða samstarfsvanda

Hugmyndir að samstarfi

  • Innleiðing á nýju samskiptaformi, byggt á Five Conversations eftir Dr. Tim Baker

  • Vinnustofa um árangursrík teymi

  • Stuðningur og handleiðsla fyrir stjórnendur

  • Greining og tillaga að umbótum

Hafðu samband og við finnum leiðina saman

bottom of page