top of page

Hvernig hefur þú það?

  • Writer: Vaka Agustsdottir
    Vaka Agustsdottir
  • Mar 19
  • 2 min read

Þessi einföldu orð geta haft djúpstæð áhrif. Það skiptir máli að finna að einhver ber umhyggju fyrir okkur og sýnir raunverulegan áhuga - bæði heima fyrir og á vinnustað.


En hvernig sýnum við raunverulegan áhuga?


Fyrir mér hefst þetta allt með regulegum samskiptum - ekki aðeins þegar vandamál koma upp, heldur í daglegum samtölum sem smám saman byggja upp traust og tengsl.


Ég hef séð hvað það getur haft mikil áhrif þegar starfsmaður upplifir að yfirmaðurinn sé raunverulega til staðar. Þegar það er öruggt rými til að tala — líka um það sem er erfitt, óþægilegt eða flókið. Slík samtöl eru ekki alltaf auðveld, en þau eru oft nauðsynleg. Og þau koma sjaldnast af sjálfu sér nema sambandið sé til staðar fyrirfram.


Þegar fólk upplifir að það sé hlustað á það, að því sé mætt af skilningi og umhyggju, hefur það áhrif á starfsánægju og vellíðan. Og vellíðan í starfi hefur áhrif á frammistöðu. Þetta eru ekki aðskildir hlutir — þeir tengjast beint.


Það er líka gott að muna að öll mikilvæg samtöl eiga sér ekki stað á formlegum fundum. Oft gerast þau óvænt - við kaffivélina eða í stuttri pásu á milli verkefna. Þegar spurningin "Hvernig hefur þú það?" er spurð af einlægni, án þess að vera á dagskrá, getur hún opnað dyr að dýpri samtölum. Oft eru það einmitt þessi óformlegu samtöl sem verða til þess að fólk opnar sig og treystir sér til að segja frá því sem raunverulega skiptir máli.


Á endanum snýst þetta ekki um að hafa öll svörin. Ég hef lært að hlutverk stjórnenda er ekki alltaf að leysa hlutina, heldur að hlusta, að vera til staðar, að sýna þolinmæði, skilning og umhyggju.




 
 
 

Comments


bottom of page